Hrakfallabálkur og brussa á eftirlaunum!!

Góðan dag, gott kvold og góða nótt!!

21.02.2008 08:50:26 / Hrönnsla

La princesa está malita..

La princesa está malita.. sem sagt litla snúllan mín er veik...
Já er með hita og hósta var voða slöpp í gær, og er haddi að fara meða hana til læknis á eftir, bara til að láta hlusta (ég og Marta ættum kanski að fjárfesta okkur í einu stykki) og láta vigta litlu snúlluna hún er svo nett eins og mamma sín :lol:
Annað búið að vera gerast fór á föstud út að borða á Tapas og í bíó með bumbuhópnum ekkert smá mikið stuð ég og Jóna vorum meira í vínsmökkuninni...
Laugard fór ég með hadda suprise út að borða á Hereford og í leikhús á Pabbann og ekkert smá gaman, hittum Joffa og Hildi kiktum síðan á næsta bar (næsti bar hét það) sem að við sátum og tjöttuðum í smá stund... tókum þá eftir því að dyravörðurinn var alltaf að koma með þvegil á gólfið... nei hann var ekki bara að skúra því að honum langaði til (efast um að eitthver geri það núorðið) heldur var svo mikill leki frá loftinu JÁ ÞIÐ LÁSUÐ RÉTT svo fór að leka á fleirri stöðum og loftið var farið að dúa smá niður... kræst hefði loftið hrunið og eitthver dúddi bara mætt niður í baðkarinu hefði maður hlegið sitt máttlausann og auðvitað hrundi loftið því að ég og Joffi vorum undir sama þaki þannig er það bara... :p
Annars var bara sunnudagurinn tekin með ró og næði ...
Nú annars kom systirinn skorrdal á klakann um daginn og hélt til partý í tilefni sjálfs síns...
og það var ekkert smá mikið stuð að hitta hana og ég held að ég og Fríða hofum talað non stop bara var svo gaman að hitta hana og daða enda skemmilegt fólk á ferðinni...
Systirinn skorrdal (íris) pantaði hjá mér rice crispis og audda fékk hún það ásamt súkkulaði koku og fullt af knúsum.. kom hún einnig með fullan poka úr hm á prinsessu heimilsins....
Jæja þetta er komið fínt núna...
á að fara eitthvað í sumar?

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.02.2008 14:48:24 / Hrönnsla

anjörnurnar..

Meikar eitthvað af þessu sens.....

 

 

Hvað þarf margar hrúta til að skipta um ljósaperu?

>Bara einn, en það þarf margar perur.

>

>Hvað þarf mörg naut til að skipta um ljósaperu?

>Ekkert, nautunum finnst ekkert gaman að breyta neinu.

>

>Hvað þarf marga tvíbura til að skipta um ljósaperu?

>Tvo líklega. Þeir bíða helgarinnar, en það endar á því að ljósaperan er

>miðja athyglinnar, talar frönsku og skín uppáhalds lit hvers og eins sem

>kemur inní herbergið.

>

>Hversu marga krabba þarf til að skipta um ljósaperu?

>Bara einn, en hann þarf svo að fara í meðferð til að komast yfir

>atburðinn.

>

>Hversu mörg ljón þarf til að skipta um ljósaperu?

>Ljón skipta ekki um perur, í mesta lægi heldur hann henni á meðan

>heimurinn snýst í kringum hann.

>

>Hversu margar meyjur þarf til að skipta um ljósaperu?

>Sjáum nú til: eina til að undirbúa peruna, aðra til að skrifa niður

>hvenær ljósaperan sprakk og hvenær hún var keypt, aðra til að ákveða

>hverjum er um að kenna að peran sprakk, tíu til að þrífa húsið á meðan

>hinir skipta um peruna.

>

>Hversu margar vogir þarf til að skipta um ljósaperu?

>Í raun veit ég það ekki.. það fer soldið eftir hvenær peran hætti að

>virka. Kannski nægir einn ef þetta er bara venjuleg ljósapera, tvo ef

>hann veit ekki hvar á að kaupa nýja. Og hver væri nú besta peran? Mikið

>af pælingum og áhyggjum yfir því.

>

>Hversu marga sporðdreka þarf til að skipta um ljósaperu?

>Og hver veit það? Afhverju viljiði vita það? Eruði kannski lögreglumenn?

>

>

>Hversu marga bogamenn þarf til að skipta um ljósaperu?

>Sólin skín, það er gott veður, allt lífið framundan og þið hafið

>áhyggjur af einhverri ljósaperu???

>

>Hversu margar steingeitar þarf til að skipta um ljósaperu?

>Enga. Steingeitur skipta ekki um ljósaperur því eftir góðar og

>athyglisverðar samræður mun ljósaperan skilja að það er miklu

>skynsamlegra að hún skipti um sig sjálf.

>

>Hversu marga vatnsbera þarf til að skipta um ljósaperu?

>Það koma helling af vatnsberum í keppni um hver þeirra er sá eini sem

>getur gefið heiminum ljós aftur.

>

>Hversu margar fiska þarf til að skipta um ljósaperu?

>Afhverju, fór ljósið?


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 08:37:53 / Hrönnsla

síðasta vika..

Það sem að stóð upp úr í síðustu viku var að Berglind og Reyndi eignuðust litla prinsessu... og get ég ekki beðið eftir því að sjá hana... innilega til hamingju með litlu prinsessuna :)

Helgin var fín annars bara Ísabell hætti loks að æla (búin að vera veik frá því á þriðjud....) og kallinn fór norður á þorrablót... svaka stuð....

Pabbi fékk loks nýja son sinn og keyrði frá Seyðisfirði til Rvk í einum rikk og keyrði frá hádegi til kl 0300 um nóttina og það er ákveðinn saga að segja frá því ... segjum bara ef að eitthver úr skaftárhreppi þarf eitthverntimann mína hjálp /fyrir utan Auju og famyli) þá verður þeim bara bent á næsta hrepp... já þar hafið þið það

Svo var bollukaffi í Heiðaselinu sem að ég, ísabella, Kristín Sól, Erna og Thomas, Salka, Margrét, Mamma, pabbi, Sigrún, Arna og Össi frændi þannig að nóg var um manninn ekkert smá mikið stuðerí....

En þetta er ágætir blogg  NÚ SVO ER SYSTIR MIN SKORRDAL AÐ KOMA Í VIKUNNI.... en hún er besti bloggari landsins þó víða væri leitað... 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 08:02:04 / Hrönnsla

Hvað fynnst þér...

 

 

Það er eitt sem að ég bara skil engann veginn ekki neitt..... :cry:Malið er þannig að fólk í blokkinni hjá okkur seldi íbúina sína til Reykjavikurborgar.... fyrst var maður svona æ ég vona að þetta verði gott fólk sem að kemur (alltaf byrjar maður á að dæma greyið fólkið....)  en það fáránlegasta af öllu saman er að það eru 700 fjöldskyldur á biðlista hjá Reykjavíkurborg um að fá íbúð hjá Félagsmálastofnun en það er ekki nema furða að það sé langur biðlisti... fólkið sem að afhenti íbúðina sína í október það er enginn enþá búin að flytja inn... hálfur okt, heill nóv heill des og núna heill Jan.... og það er svona oft verið að koma og fara til að vinna í henni... það er ekkert unnið bara á fullu og síðan afhent Ó NEI...sorry en hvað með þessar fjoldskyldur sem að bíða eftir að komast inn.......... ég veit að það var nýleg innrétting þarna og nýlegt parket.... er eg kanski ein um þetta að það á ekki að taka 3 ½  mánuð í þetta.... bara að fá gaura og gera það sem að þarf að gera barabing barabúmm og láta fólkið fá íbúðarlykilinn... semsagt þetta var þegar að Villi var borgastjóri svo var Dagur svo Óli eða hvað sem að hann heitir furðulegur gaur... en þetta er svona mín meining kanski er kellan bara óþolinmóð en COMMON 3 ½ MÁN.... er það ekki too much ég spyr? 8|

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 08:11:35 / Hrönnsla

og meiri bommserí bommm

Ja hérna...

Var í ammmæli á laugard hjá Ingu B eigum við að ræða frábæru súpuna og bara klikkaðann forrét og eftirrét og við vorum að eta til miðnættis... nt það þarf mikið til að þessi saumaklubbur þegi en yfir desertnum þá var þögn við matarborðið svona hálf freaky.. hehe

En Ásdís átti senuna tilkynnti hópnum að hún ætlaði að fjölga í barnabommið í saumó og að hún kæmi með 2 stykki ekkert smá gaman við erum 11 í saumó og það er von á 6 stykkjum þetta verður stuð í næsta saumóhitting með börnum og mökum hahaha sem betur fer er það bara einu sinni á ári....

En við erum búin að leiga út herbergið hjá okkur og lýst mér bara vel á stelpuna og vona að þetta gangi nú barasta vel ;)

Jæja ætla að bæta Ásdísi og Agnari á listann


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 13:36:31 / Hrönnsla

Vá 2008 ætlar að verða viðburðaríkt ár...

Ok byrjun á byrjununni....

Árið byrjaði á því að Haddi fór á hnén (og segist enþá vera aumur í hnjánum) jæja og endalaus gleði þar.... segi seinn frá hvernig það var sagt gamla liðinu frá því....

Vinafólk okkar sem að átti að eiga 8 jan ákvað bara að gera það 29 des.... og þá eru eftir..

Berglind og Reynsi

Nonni og Þóra

Elsa og Ásgeir

Hulda og (maðurinn hennar)

Hildur og Joffi

Berglind og Jonni 

Rut og Grjóni

Arna Rut og Gummi

Sigrún og Dóri

Abba og Jón

Addý og Helgi

Gunnsa og Jói

Tanja og Arnar

Hulda og Allan

Inga Birna og Helgi

Bogga og Martin

Ásdís og Agnar 2 stykki

 Vá ég er að gleyma eitthverjum fleirri en það mun rifjast upp...

meira sem að er

hlin vink var búin að gera svo mikið grín af hækjunum mínum að hún endaði á því að þurfa að fá þær lánaðar.. já litla mús datt og okklabrotnaði OG ÉG TEK ÞAÐ FRAM AÐ ÞAÐ FER HENNI EKKI VEL AÐ VERA ÚTÚRDÓPUÐ en hún er svona að verða fín í hækjuhlaupinu.... allt að ske ske

svo ætlar Guðrun vinkona að útskrifast núna í sálfræði í feb....

Íris skorrdal kemur í feb.

Bogga kemur í mars með bumbubúann sinn

Þetta verður heljarinnar ár og bara gaman.....

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 13:24:41 / Hrönnsla

jæja þetta er nú ekkert smá erfitt að blogga á þessu..

Ja hérna hér...

Ég veit ekki hvað ég er búin að reyna að blogga svo oft 8| alltaf klikkar þetta kemur ekki færslan inn.... ef að þetta kemur inn þá skal kellingin taka sig á... ókei...


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 17:52:17 / Hrönnsla

Talandi um að vera löt.....

Jæja það er kominn timi að hætta þessari leti.....

Margt og mikið búið að gerast síðan í júli....

Viku fyrir verslunarmh var farið í Aðaldal í búsatð og þaðan haldið á Snæfellsnes yfir versló... en flúðum þaðan hratt.. á laugard og vorum í bænum til mánud og haldið var þá í Skálhollt.... og voða fínt...

11 ágúst var alveg frábær enda gifting í gangi þar.... Inga B og Helgi settu upp hringa í Bústaðarkirkju og var svo boðið í heljarinsveislu og vantaði ekki stuðið þar enda þegar að er boðið upp á pysuparty um miðnætti telst það ekki vera slæmt......

þann 8 Sept gengu Danni og Embla í það heilaga og var það gert með pompi og prakt og vantaði þar nú ekki heldur stuðið... enda ekki slæmt þegar að  við saumaklúbbskellur erum til staðar.....

Svo var það síðasta helgi var þá farið til DK í skírn já Hekla Ósk var skírð og fórum við í kirkjuna sem er rosa falleg og endaði reyndar á því að Ísabella var komin til prestsins (ætlaði greinilega ekki að leyfa frænku að hafa athyglina) þaðan var haldið í kaffi og smorbrod í glæsisal.... en það var ekki nóg eftir að allir voru búnir að háma í sig að eta var haldið heim til Kjelds og Karenar og haldið áfram að fagna enda var 20°c úti og allir úti í garði eða á pallinum með kampavin gos eða bla/rod ol alveg magnað þetta verður ekki trompað.... komum heim á mánudagskvoldið... kella náði að koma heim koma barni og kall í bólið svo var aðeins kúrt aðeins og farið á fætur eftir 3 klst og haldið aftur til keflavikur.... og þar lá leiðin til Hollands...  jæja var að fá matinn á borðið sú ferðasaga kemur seinna.....

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 08:57:33 / Hrönnsla

Brussustælarnir að missa sig.....

:lol: Hrönnslan (aka brussulíusinn) er ekki ná að jafna sig á þessum bib bib bib :^) ökklum kræst.... fórum í sund´i gær Ruttlan, systirin skorrdal og litla mýslan var tekin með....

eftir smá show í kofun þá var farið í heita pottin.... þá ákvað minn okkli á leiðinni að fara í fýlu ég get svo svarið fyrir það hann er með pms eða eitthvað... krappppp jæja er nú kroppurinn minn mjög flottur að svo teljist  sérstaklega þeim sem að fynnst appelsínuhúð og slit flott þá telst eg vera hot á bikiní... en það voru minar siðustu hugsanir í gær heldur að maður sé að haltrast á fullu  í sundlaug dem hvað þetta var sárt og var c.a. 30 min frá bílastæðinu og heim til min sem að tekur nú venjulega mannveru ca 5 min... en ég ákvað að taka sniglagonguna á þetta.... já kraftganga í sniglum fór af stað í gær og tapaði ég.... og ég sem að var að verða svo góð í okklanum að ég hugsaði fint þá get ég farið á hjólið og tekið góða túra..... argggg en Grjóni heldur bara áfram fyrir mig að láta mótorinn ganga... that is what I hope for......

Kellingin ætlar vestur í bæi um helgina mútta og pabbinn koma með og Hulda frænka og svo fjöldskyldan hans Hadda... þetta verður stuð og þá er bara að vona að það haldist þurrt... svo að litla músin min getir rúllað ser á grasinu.....................

...... jæja óver and át..


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 09:25:28 / Hrönnsla

Fljótshlíð og hveravellir...

Haldið va í fljótshlið um síðustu helgi og kitlaði það mjög að vara fjallabak nyðra en sökum þoku og rigningar þá var ákv að kúra bara og dorma við rigninguna því likt hvað það var yndislegt aldrei :$ myndi ég leifa mér þetta heima að kúra bara í ruminu og dotta....

við fórum á Hellishóla og kom með það mjog á óvart ýmislegt þar...

Jú flott tjaldsvæði 850 kr nóttin sem að er allt í læ það eru vaskar til að vaska upp, sturtur, wc mjög hreinlegt, 2 heitir pottar í góðu skjólg, driving range gólvollur og kennsla, og pöbb.

Ég er persónulega ekkert mjög hrifinn af þessum pöppum á tjaldsvæðum en margir aðrir eru sáttir..

Svo var auglýsing að eitthverjir trúbbar ættu að spila og happy hour væri frá 23:30-24:00 þannig að þetta var eiginlega happy half an hour.....

Svo koma yndislegu fréttirnar Hveravallarhópurinn var að taka sig saman og á að fara á hveravelli 1-2 sept.. það er ekki frá sögu færandi að þetta er frábær hópur sem stendur af frábærum kellum..... og við allar höfum okkar hlutverk í þessum hópi... við fórum fyrst á hveravelli 2002 að mig minnir og held ég að þetta hafi verið sú besta ferð sem að ég hef upplifað á hveravelli...

byrjaði að ein gleymdist á bensínstoðinni,önnur gleymdi nestinu sinu heima en ekki áfengi, sú sama pantaði sér að borða á geysi en borgaði matinn en fór áður en að pönunin var til,þriðja keyriði út af og varð til þess að sú fjórða gerist alki eftir að hafa lent í þeim hrönnum,sú fimmta gat ekki labbað yfir litlu brúnna hjá neðri skálanum vegna sjónleysis, og svo má áfram telja og ekki efast ég um að þessi ferð í sept muni merkja soguna.....

Næsta helgi er tekin á að skella sér á vestfirði nánar tiltekið á snæfjallastrondina... sem að verður ágætis heimsókn og öll fjöldskyldan með....

Kellingin kveður að sinni...


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2007 11:49:32 / Hrönnsla

AAMÆLLI

HÚN Á AFMÆLI Í DAG HÚN Á AFMÆLI Í DAG HÚN Á AFMÆLI HÚN SYSTIRIN SKORRDAL HÚN Á AFMÆLI Í DAG HÚN ER AÐALSKVÍSAN Í DAG HÚN ER AÐALBEIBIÐ HÚN IRIS  HÚN Á AFMÆLI Í DAG

INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKU IRIS OKKAR.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 08:25:55 / Hrönnsla

ekki mikill áhugi...

Ja hérna ég sé að það er ekki mikill áhugi fyrir hendi að taka þetta blessaða quiz... ♥

En hvað um það fór í bústað síðustu helgi með Jonna, Berglindi og Karen Birtu og var það alveg hreint yndislget (bústaðurinn gæti hafa verið betri) en... við skemmtum okkur kiktim i husdyragarðinn stakkur getur það verið að hann heiti og ekkert smá gaman fyrir yngir kynslóðina Ísabella var dálitið mikið fyrir kanínurnar en það er bara gaman.... mæli með að fara þarna og svo er minigolf og pool ég tapaði big time fyrir tjallinum en svona er það víst...

Næsta helgin er dálítið óljós annaðhvort förum við vestur eða austur .... kemur í ljós ég panta hér með allavega sól......

Hitti bumbusundskvísurnar í gær og er það alltaf jafn gaman... ýmis ráð og kræsingarnar ekki af verri endanum jeminn eini mig langaði að taka nesti heim Marta min ég bíð eftir uppskriftunum og gangi þér alveg svakalega vel í vikunni og ég mun hugsa til ykkar...

kveð að sinni.... kem með eitt nöldurblogg herna seinna í dag og gaman væri að fá ykkar álit á því... máli :klikk:


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 09:26:32 / Hrönnsla

Quizzzz

:o   Jæja var að búa til nýtt quiz....

það er undir Hrönnslan......


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 08:29:02 / Hrönnsla

Nytt bloggeri bloggg.

jæja þa er kominn timi á nýtt blogg...

fórum í mörkina um helgina sem að var æðislegt veður, dálitið troðið úffff en allt er gott sem að endar vel.... eg var nú mikið að spá í að  taka einn geymir úr einum bílnum hjá einu fíflinu og fela hann.... við erum að tala um hann lagði fyrir aftann vagninn okkar og blastaði helvitis græurnar og dansaði upp á þaki með 15 ára stelpur á pallnum hjá ser.... og fannst honum sjálfum hann mjög töff.... 34 nýskilinn og hanga með 15 ára stelpum.... en eitthverstaðar verða lúðar að vera en þúrfa ekki að vera ofaný mér :S en hann lækkaði nú eftir að Arni fór nú og ræddi við hann.... svo blastaði kvikyndið aftur kl 06 um morguninn og þegar að Haddi fór á wc um 9:30 þá var minn maður með allt í botni enþá og dauður í framsætinu vááá en æðislegur en við hefðum bara átt að fara með börnin og láta þau fara í öskurleiki þarna um morguninn.... en ég var samt góð stelpa og let bílinn hans vera enda nægur bömmer held ég eftir að hafa verið að dansa upp á toppi á bílnum sínum....

 

Hey Systir Skorrdal ég er nú búin með fleirri færslur í þessum mánuði en þú hi hi hi

 

Jæja svo er það bara miðvikudagur í dag ATM í kvöl og fynnnst mér bara gaman af dramanu þar lol ;) jú svo þarf ég að baka kanski eitt stykki bounty koku fyrir Ruttluna,, ef að hún verður ekki að fljúga....

 

Ja hérna ég fékk sjokk í gær, ég sá framaná DV þá er þetta Kalli sem að var með okkur í handbolta í viking sem að var tekin fyrir tilraun að smygla kóki til portúgals jeminn eini hvað fær fólk í að reyna þetta í alvoru og hvað þá í Braselíu jeminn og ekki vissi ég nú að hann væri í ruglinu jeminn æ þó að eg vorkenni honum nú mikið þá er þetta samt hvað fólk kallar nú bara yfir sig....

Jæja over and out... þangað til að næsta hugsi...


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 08:10:08 / Hrönnsla

Lovely

:) jæja þá er búið að fara með litlu prinsessuna í fyrstu útileguna.. og tókst bara mjög vel.. kellan var reynar alltaf að finna barnið hvort að henni væri kalt því að ég er svo mikil KULDASKRÆFA 8| en það sem að hún er heitfeng eins og pabbi sinn þá er þetta í lagi :D En  helgin tókst fránærlega í alla staði og hittum við mikið að fólki innfrá....

svo er bara stefnan tekin á morkina aftur næstu helgi jú jú það á bara að endurtaka alle samen aftur :D

en hvað með ykkur kellur og kallar á ekkert að fara að koma sér út úr bænum?


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18